Ný síđaElísabet Kristjánsdóttir
Jæja, ég ætla að joina hópsíðuna www.blog.central.is/liger! Svo bless bless þessi síða.HmmpffElísabet Kristjánsdóttir
Ég veit ekki hvað ég er að blogga, það kommentar aldrei neinn hjá mér.Ég er búin að vera veik í 3 daga núna, með eyrnarbólgu (ég veit ég veit, 17 ára með eyrnarbólgu?)
Thelma skólafélagi er hringir samt alltaf svona 9 eða 10 og vekur mig "Hvar ertu?!" "Ertu ennþá veik?!"... og svo sofna ég ekkert aftur, takk Thelma.
Ég er búin að falla tvisvar í bóklega ökuprófinu (klapp,klapp)
Ari og ég ætlum að reyna að fara á Mýrina í kvöld.
Hekla keppir í Morfís 23 nóv, ég hlakka ýkt mikið til.
....Kolla dáin?
Sushi á næstunni.
Kv, Aulinn lasalingur
Búa saman á tánings aldri?Elísabet Kristjánsdóttir
Nú er mál með vexti að mamma og Nala eru að fara flytja til Danmerkur. Ég flyt til pabba en hef fengið ófáar spurningar um hvort ég flytji til Ara. Og til þess að þurfa ekki að svara fleirum, koma hérna ástæður þess hvers vegna ég geri það ekki.Ástæða númer 1: Ég er 17 ára.
Ástæða númer 2: Pabbi minn eldar mat fyrir mig, ekki Ari.
Ástæða númer 3: Ari andar svo hátt.
Ástæða númer 4: Ég fæ að sofa ein í mínu rúmmi.
Ástæða númer 5: Við erum bara búin að vera saman í 5 mánuði.
Ástæða númer 6: Ari tekur aldrei til.
Ástæða númer 7: Ég efast um að Ari geri sömu mistökin tvisvar!
Takk fyrir mig og hættið að spurja að þessu. ÉG FLYTJA PABBA JÁ.
Kv,
Aulinn sem var að kaupa gorgeus skó......
JérsElísabet Kristjánsdóttir
Í gær var stelpukvöld.Í gær horfðum við á Americas next top model.
Í gær fórum við á kaffihús.
Ígær fórum við Hekla og Kristín á Club Óðal að horfa á stripp. (Og ég er ekki að plata).
AAAAAAAAAAAElísabet Kristjánsdóttir
Ég er að skrifa þetta blogg í miklum spenning, ég ætla ekki að fara að æfa íshokkí þar sem ég hef heyrt að allt skautið geri rassinn á manni stórann og massaðan, ég vilþaðekki!SVO!!! Að ég og Hekla ætlum að fara að æfa MAGADANS! MAGADANS! þar sem maginn verður fallega sléttur og rassinn lítill og sætur!
ER ÞETTA EKKI SPENNANDI?!!?!??!
Er farin til Heklu að horfa á americas next top model til þess að ræða þetta frekar.
Kv,
Aulinn magó.
Ari hommi, Beta lessa.Elísabet Kristjánsdóttir
Ari er byrjaður að æfa brasilíska bardagaíþrótt ...*gefur sér smá tíma til að engjast um af hlátri áður en hún heldur áfram að skrifa*
Sem er þekkt fyrir að vera svolítið hommaleg, og jaaa... hún er það nú svolítið, en þetta finnst honum skemmtilegt greyinu. En ég ákvað að jafna þetta út svo að ég er að fara að byrja æfa íshokkí. Stelpa með mér í skóla sagði að þetta væri skemmtilegt svo ég ætla að byrja.
Íshokkí ha? Verður maður nokkuð lamin? Kannski hefur þetta lesbísk áhrif á mann og ég verð lessa? Ástfangin af konu?
En þetta er allavega eitthvað sem mig langar að prófa, svo auðvitað skylmingar en það er hommalegt líka... við Ari getum ekki bæði verið hommar ha!
En já, bílpróf á leiðinni og svo stelpukvöld á morgun, ahh....
Og hey, hvernig á ég að vera á myndinni á ökuskírteininu? "Gelgjupós"? "Geggjað flippuð"? "Eins og ég finni vonda lykt"? "Venjuleg"? eða "ofboðslega rosalega glöð"? Endilega segið mér hvað ykkur finnst... og svo getið þið auðvitað komið með skoðanir.
Og já... SEINASTA BLOGG MISSKILDIST!! ÞAÐ KEMUR ARA OG ALDÍSI EKKERT VIÐ! Guð minn góður, ég tek varla eftir því að þau séu að tala saman :) Svo ekki slúðra mig í hel dúllueskfirðingar.
Það eru fleiri í þessum aðstæðum krakkar mínir.
En já ég ætla að gera þetta áður en ég fer að sofa;
Tannbusta mig,
Lesa meira,
Fróa mér,
lesa meira,
fá mér vatnsglas,
pissa.
Pottþétt plan? Játs
En veriði sæl.
Ykkar einlægur,
Auli sem er rosalega góður við allt og alla... alveg satt.
Smá pćlingElísabet Kristjánsdóttir
Spáið í því að hætta með stelpu/strák og byrja með annari/öðrum stelpu/strák en samt væri systir fyrverandi sívælandi í ykkur? Það er ofboðslega þreytandi, hlítur eiginlega að vera.Kannski er systkynið þroskaheft? Maður veit ekki.
DanmörkElísabet Kristjánsdóttir
Við Ari skelltum okkur til Danmerkur ásamt móður minni þann 19 ágúst. Fórum við hress og kát á vit ævintýranna sem byrjuðu í Leifstöð. Þar keyptum við litabók og lituðum eins og við ættum lífið að leysa.Í Flugvélinni var gaman, horfðum á Finding Nemo og lituðum meira.
Svo lendum við og förum á gistiheimili mannsins hennar mömmu sem að er sveitagisting á Suður Jótlandi.
Fyrsta daginn förum við Ari niður í bæ, missum okkur í ódýrum bjór. Förum svo að almenningsgarði og sjáum þar fólk að ríða, Ari tók mynd af þeim ... þeim var nokk sama. (Má bæta því við að þetta var mannskemmandi sjón).
Dagarnir voru nokkurnvegin svona:
Við Ari niður í bæ að drekka öl og borða. Svo var auðvitað verslað.
Föstudagskvöldið ákveðum við Ari að fara "út á lífið" í þessum litla, litla bæ. Liggur leið okkar á staðinn Crazy Daisy (ég fór næstum ekki þarna inn útaf þessu nafni). Þar sáum við fulla Dana og ég vingaðist við tvær heitustu gellurnar, Ara til mikillar gleði.
Og það var gott að koma heim. Nenni ekki meira. Þessi ferð var æði. Ari er æði.
Kv,
Aulinn útlandari.
Harry PotterElísabet Kristjánsdóttir
Ég er að bíða eftir uglu núna. Mig langar að fara í Hogwart skóla galdra og seiða.Sko svo verður Harry Potter vinur minn.
Þessi ugla hlítur að vera bara rétt ókomin.
Ég ætla að flúga þangað með kústi, ég veit ekki hvernig ég ætti að komast öðruvísi.
Gvöð hvað ég hlakka til.
Kv,
Aulinn galdrakarl.
GaurElísabet Kristjánsdóttir
Ég er með pisshár."Hvað er pisshár ?" hugsi þið örugglega. Ég skal fræða ykkur fáfróðu lesendur mínir. Pisshár er einfaldlega það að vera með hár á litinn eins og piss.
"En kæri Auli hvernig stendur á að þú sért með pisshár?" Ha ha en og aftur eru þið svo fáfróð. Það varð þannig að ég ákvað að lita á mér hárið og valdi litinn piss, liturinn piss er uppáhalds liturinn minn.
Ef þið viljið vita hvernig pisshár er þá farið þið einfaldlega á google og skrifið inn "pee hair" og þá fáið þið þessa mynd upp:

Þetta gefur ykkur nokkuð góða hugmynd hvernig hárið á mér lítur út þessa stundina.
Og ein spurning, er eðlilegt að ein geirvarta sé hörð en hin ekki? Þetta er sko alltaf að gerast fyrir sko vinkonu mína.
Ég ætla bráðum að setja inn myndir af vinum og kunningjum og kannski fleiru ef mig langar.
En reynið að komast að þessu með geirvörturnar, það virkar ekki að skrifa "Why dous one nipple get hard but not the other" á google.
Góða nótt.
Kv,
Ykkar einlægur Auli sem er með pisshár.
